Bergtegundir hafa eilífa hringrás eins og margt annað í þessum heimi. Fyrst þarf bráðin, sjóðandi heit kvika að komast upp á yfirborðið með eldgosi og verður að storkubergi þegar það storknar. Eftir það veðrast bergið og veðraða efnið berst til sjávar og safnast saman i setlög sem verða fyrir miklum þrýstingi og verða þá að setbergi. Ef að en þá meiri þrýstingur fer á setbergið þá gæti hitinn breytt upprunalegu steintegundinni í einhverja aðra og mynda þannig myndbreytt berg. Myndbreytt berg. Myndbreytt berg getur líka myndast þegar kvika storknar djúpt í jörðu og risið síðan upp á yfirborðið vegna þrýstings. Myndbreytt berg getur hreyfst með jarskorpuflekahreyfingu upp á yfirborðið og þar tekur roföflin við.