Loftsteinar
Loftsteinar eru lítil brot úr smástirnum eða reikistjörnum á sveimi í sólkerfinu okar. Þeir eru allt frá því að vera á stærð við sandkorn og alveg upp í rúman 1 metra að stærð. Flestir loftsteinar eru leifar frá þeim tíma þegar sólkerfið var að myndast eða fyrir tæplega 4,6 milljörðum ára. Loftsteinar eru því elsta berg sem finnst í sólkerfinu.
Móberg er sjaldgæfur út um alla evrópu en mjög algengur á íslandi. Móberg myndast þegar mörg þúsund gráða heitt berg snerti vatn. Móberg myndast þess vegna þegar það er eldgos undir jökli. Þá verður stór gufusprenging og askan fellur niður á jöðina og þá myndast móberg. Sumir segja að Móberg sé berg/steinn Íslands
Vikur
Vikur er bergtegund sem getur flotið á vatni. Vikur er frekar frauðkennt, lítt kristallað berg. Það er bæði til ljós vikur og dökkur vikur. Ljósi vikurinn kallast líparít og dökki kallast andesít eða basalt. Vikur er mikið notaður í byggingariðnaði sem hleðslusteinar, léttsteypueiningar og múrkerfi. Vikur er einnig notaður til eldvarna, skorsteinaeiningarog í kattarsand.